



Endó samtökin stóðu fyrir hönnunarkeppni þar sem keppendur fengu það verkefni að túlka myndrænt setninguna „Þetta er allt í hausnum á þér!“. Orð sem margir með endómetríósu hafa heyrt frá heilbrigðisstarfsfólki. Markmiðið var að fanga þá tilfinningu sem fylgir því að fá sársauka og einkenni afskrifuð, jafnvel þegar um mikla verki er að ræða.